![Ingibjörg Sólrún Gísladóttir](/myndir/thingmenn-cache/264/264-220.jpg) Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Fædd í Reykjavík 31. desember 1954. Foreldrar: Gísli Gíslason (fæddur 30. nóvember 1916, dáinn 23. október 2006) verslunarmaður og kona hans Ingibjörg J. Níelsdóttir (fædd 23. febrúar 1918, dáin 11. júní 2013) húsmóðir. Maki (29. júlí 1994): Hjörleifur Sveinbjörnsson (fæddur 11. desember 1949) kennari í kínversku og þýðandi. Foreldrar: Sveinbjörn Einarsson og kona hans Hulda Hjörleifsdóttir. Synir: Sveinbjörn (1983), Hrafnkell (1985). Stúdentspróf MT 1974. BA-próf í sagnfræði og bókmenntum HÍ 1979. Gestanemandi við Hafnarháskóla 1979-1981. Cand. mag. nám í sagnfræði við HÍ 1981-1983. Vann ýmis almenn störf með námi 1974-1981. Starfsmaður dönsku póstþjónustunnar 1979-1981. Ritstjóri tímaritsins Veru 1988-1990. Ýmis ritstörf og blaðamennska 1990-1991. Borgarstjóri Reykjavíkur 1994-2003. Skipuð 24. maí 2007 utanríkisráðherra, lausn 1. febrúar 2009. Formaður stúdentaráðs HÍ 1977-1978. Borgarfulltrúi í Reykjavík 1982-1988 og 1994-2006. Í skipulagsnefnd Reykjavíkurborgar 1982-1986 og í félagsmálaráði 1986-1988. Formaður borgarráðs 1994-2003. Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1987. Í þingmannanefnd EFTA/EES 1991-1994. Formaður stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkur 1994-2002. Í stjórn Landsvirkjunar 1999-2000. Formaður miðborgarstjórnar 1999-2002. Formaður stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins 2000-2003. Í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu 2002-2003. Formaður dómnefndar um skipulagssamkeppni um Tónlistar- og ráðstefnuhús 2001. Formaður stjórnar Aflvaka 2002-2004. Formaður hverfisráðs miðborgar 2002-2005. Í bankaráði Seðlabanka Íslands 2003-2005. Í stjórnarskrárnefnd 2005-2006. Varaformaður Samfylkingarinnar 2003-2005, formaður 2005-2009. Alþingismaður Reykvíkinga 1991-1994 (Samtök um kvennalista), alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður 2005-2007, alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður 2007-2009 (Samfylkingin). Varaþingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður maí og október 2003, maí 2004 og janúar-febrúar 2005 (Samfylkingin). Utanríkisráðherra 2007-2009. Utanríkismálanefnd 1991-1993, félagsmálanefnd 1991-1994, heilbrigðis- og trygginganefnd 1991-1994, efnahags- og viðskiptanefnd 2005-2006. Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2005-2007.
Ritstjóri: Vera (1988-1990). |