Laun og kostnaðargreiðslur þingmanna

Á þessari vefsíðu eru birtar upplýsingar um laun þingmanna og kostnaðargreiðslur til þeirra. Hægt er að skoða fyrir hvern þingmann m.a. hver laun hans eru (þ.m.t. álagsgreiðslur), hverjar eru fastar kostnaðargreiðslur til hans (t.d. húsnæðis- og dvalarkostnaður) og hvað hann hefur fengið endurgreitt fyrir útlagðan kostnað (t.d. ferðakostnaður innanlands).

Nöfn þingmanna eru birt í stafrófsröð. Þegar smellt er á nafn þingmanns birtast upplýsingar um hann. Þar er hægt að smella á einstaka kostnaðarþætti, t.d. húsnæðis- og dvalarkostnað, og fá upplýsingar hvað felst í þeim kostnaðargreiðslum.

Vefsíðan er uppfærð um 25. hvers mánaðar og birtar nýjar upplýsingar fyrir undangenginn mánuð. Í samræmi við ákvörðun forsætisnefndar 9. apríl 2018 eru jafnframt birtar upplýsingar um laun og kostnaðargreiðslur þingmanna frá alþingiskosningunum 2007. Undanskildir í þeirri birtingu eru fyrrverandi þingmenn sem látist hafa (miðað við andlát fyrir 1. desember 2018). Í þeim tilvikum sem þingmenn kjörnir 2007 áttu einnig sæti á fyrra kjörtímabili (2003–2007) taka upplýsingarnar til alls ársins 2007. Um birtingu fjárhagsupplýsinga aftur í tímann leitaði Alþingi álits Persónuverndar og gaf jafnframt öllum þingmönnum sem í hlut eiga kost á að gera athugasemdir. Í felliglugga hér að neðan er hægt að velja það almanaksár frá 2007 sem menn vilja skoða.

Greidd laun og kostnaður

Upplýsingarnar í töflunni miðast við október 2007, en í felliglugga er hægt að velja önnur ár. Eingöngu eru sýndar greiðslur frá Alþingi. Ráðherrar fá að auki launagreiðslu frá viðkomandi ráðuneyti.

Launagreiðslur eru þingfararkaup og álag á það. Fastar mánaðar­legar kostnaðargreiðslur eru húsnæðis- og dvalarkostnaðargreiðslur, fastur starfskostnaður og fastur ferðakostnaður. Annar kostnaður er m.a. kostnaður vegna ferða innan og utan lands, símakostnaður og starfskostnaður skv. reikningum.

Nafn Launa­greiðslur Fastar mánaðar­legar
kostnaðar­greiðslur
Annar kostnaður
Arnbjörg Sveins­dóttir 7.328.486 kr. 2.161.020 kr. 7.049.994 kr.
Atli Gísla­son 4.079.595 kr. 1.462.275 kr. 542.179 kr.
Ágúst Ólafur Ágústs­son 6.987.386 kr. 851.805 kr. 1.258.879 kr.
Álfheiður Inga­dóttir 4.079.595 kr. 646.386 kr. 507.866 kr.
Ármann Kr. Ólafs­son 4.079.595 kr. 909.482 kr. 574.655 kr.
Árni Páll Árna­son 4.419.053 kr. 817.314 kr. 1.741.264 kr.
Árni Johnsen 4.079.595 kr. 1.736.096 kr. 2.758.249 kr.
Árni M. Mathiesen 6.419.793 kr. 1.426.074 kr. 0 kr.
Árni Þór Sigurðs­son 4.079.595 kr. 637.012 kr. 954.991 kr.
Ásta R. Jóhannes­dóttir 6.979.001 kr. 552.540 kr. 2.805.123 kr.
Ásta Möller 6.919.569 kr. 788.075 kr. 1.818.729 kr.
Birgir Ármanns­son 8.381.414 kr. 1.309.620 kr. 1.569.060 kr.
Birkir Jón Jóns­son 6.477.170 kr. 2.175.061 kr. 3.515.923 kr.
Bjarni Benedikts­son 7.317.501 kr. 1.390.200 kr. 2.451.863 kr.
Bjarni Harðar­son 4.079.595 kr. 1.416.994 kr. 1.544.439 kr.
Björgvin G. Sigurðs­son 6.419.793 kr. 1.660.522 kr. 2.080.475 kr.
Björk Guðjóns­dóttir 4.079.595 kr. 1.416.994 kr. 1.201.696 kr.
Björn Bjarna­son 6.419.793 kr. 262.691 kr. 504.289 kr.
Einar K. Guðfinns­son 6.419.793 kr. 2.056.600 kr. 158.540 kr.
Einar Már Sigurðar­son 6.979.001 kr. 2.814.605 kr. 4.162.869 kr.
Ellert B. Schram 4.088.959 kr. 909.668 kr. 944.842 kr.
Geir H. Haarde 6.419.793 kr. 766.980 kr. 0 kr.
Grétar Mar Jóns­son 4.079.595 kr. 1.120.183 kr. 2.087.022 kr.
Guðfinna S. Bjarna­dóttir 4.079.595 kr. 828.149 kr. 1.001.752 kr.
Guðlaugur Þór Þórðar­son 6.767.870 kr. 919.760 kr. 1.192.913 kr.
Guðni Ágústs­son 8.355.506 kr. 2.479.756 kr. 1.383.572 kr.
Gunnar Svavars­son 4.629.226 kr. 930.301 kr. 103.286 kr.
Helgi Hjörvar 6.543.936 kr. 522.754 kr. 2.069.253 kr.
Herdís Þórðar­dóttir 2.975.371 kr. 983.762 kr. 659.115 kr.
Höskuldur Þórhalls­son 4.079.595 kr. 1.437.981 kr. 1.389.917 kr.
Illugi Gunnars­son 4.120.012 kr. 828.149 kr. 1.000.490 kr.
Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir 7.687.530 kr. 795.420 kr. 558.493 kr.
Jóhanna Sigurðar­dóttir 6.813.267 kr. 832.648 kr. 687.519 kr.
Jón Bjarna­son 6.177.614 kr. 2.500.142 kr. 4.361.288 kr.
Jón Gunnars­son 4.079.595 kr. 909.482 kr. 615.729 kr.
Jón Magnús­son 4.079.595 kr. 740.032 kr. 404.312 kr.
Jón Sigurðs­son 4.279.571 kr. 363.803 kr. 0 kr.
Jónína Bjartmarz 5.888.695 kr. 273.581 kr. 62.201 kr.
Karl V. Matthías­son 4.120.012 kr. 1.396.118 kr. 2.068.209 kr.
Katrín Jakobs­dóttir 4.181.591 kr. 820.409 kr. 141.751 kr.
Katrín Júlíus­dóttir 6.969.424 kr. 1.349.940 kr. 2.400.618 kr.
Kjartan Ólafs­son 7.026.800 kr. 2.852.681 kr. 1.447.932 kr.
Kolbrún Halldórs­dóttir 6.371.212 kr. 854.783 kr. 2.053.970 kr.
Kristinn H. Gunnars­son 7.039.926 kr. 2.896.450 kr. 4.704.743 kr.
Kristján Þór Júlíus­son 4.446.033 kr. 1.613.620 kr. 2.074.947 kr.
Kristján L. Möller 6.419.793 kr. 2.276.487 kr. 1.921.332 kr.
Lúðvík Bergvins­son 6.982.572 kr. 2.504.340 kr. 1.672.098 kr.
Magnús Stefáns­son 6.979.001 kr. 2.047.792 kr. 2.010.036 kr.
Mörður Árna­son 4.280.905 kr. 395.389 kr. 325.635 kr.
Ragnheiður E. Árna­dóttir 4.079.595 kr. 900.290 kr. 1.017.385 kr.
Ragnheiður Ríkharðs­dóttir 4.638.803 kr. 930.301 kr. 508.534 kr.
Sigurður Kári Kristjáns­son 7.317.501 kr. 1.274.866 kr. 773.000 kr.
Siv Friðleifs­dóttir 7.004.106 kr. 983.002 kr. 1.525.510 kr.
Steingrímur J. Sigfús­son 9.583.489 kr. 2.079.305 kr. 3.535.464 kr.
Steinunn Valdís Óskars­dóttir 4.629.226 kr. 821.820 kr. 274.776 kr.
Sturla Böðvars­son 9.363.456 kr. 2.114.379 kr. 1.735.515 kr.
Valgerður Sverris­dóttir 6.419.793 kr. 1.881.634 kr. 2.726.295 kr.
Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir 6.419.793 kr. 766.980 kr. -63.090 kr.
Þórunn Sveinbjarnar­dóttir 6.419.793 kr. 292.877 kr. 483.923 kr.
Þuríður Backman 7.373.805 kr. 2.556.844 kr. 3.197.953 kr.
Ögmundur Jónas­son 6.577.059 kr. 586.834 kr. 650.381 kr.
Össur Skarphéðins­son 6.792.924 kr. 982.648 kr. 756.808 kr.
CSV (Excel) skrá

Réttur til launa og greiðslna

Kveðið er á um laun og önnur kjör alþingis­manna í lögum um þingfararkaup alþingis­manna og þingfarar­kostnað, nr. 88/1995, með síðari breytingum.

Forsætisnefnd setur nánari reglur um greiðslur, bæði fastar og breytilegar (þ.e. eftir reikningum). Nákvæmar upplýsingar um þessar greiðslur er að finna í reglum um þingfararkostnað.

Alþingi greiðir ráðherrum húsnæðis- og dvalarkostnað skv. 6. gr. laga nr. 88/1995 en ráðuneytin greiða ráðherrum laun auk annars þingfararkostnaðar sem fellur undir 7.–9. gr. laga nr. 88/1995.

Nafn Fastar mánaðar­legar launa­greiðslur Fastar mánaðar­legar kostnaðar­greiðslur
Andrés Ingi Jóns­son 1.754.717 kr. 41.500 kr.
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnars­dóttir 1.525.841 kr. 96.900 kr.
Ágúst Bjarni Garðars­son 1.678.425 kr. 96.900 kr.
Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir 2.487.072 kr. 0 kr.
Ásmundur Einar Daða­son 2.487.072 kr. 0 kr.
Ásmundur Friðriks­son 1.831.009 kr. 158.700 kr.
Ásthildur Lóa Þórs­dóttir 1.754.717 kr. 282.400 kr.
Berglind Ósk Guðmunds­dóttir 1.525.841 kr. 282.400 kr.
Bergþór Óla­son 1.754.717 kr. 282.400 kr.
Birgir Ármanns­son 2.487.072 kr. 96.900 kr.
Birgir Þórarins­son 1.602.133 kr. 158.700 kr.
Bjarkey Olsen Gunnars­dóttir 2.487.072 kr. 259.700 kr.
Bjarni Benedikts­son 2.746.312 kr. 0 kr.
Bjarni Jóns­son 1.754.717 kr. 356.600 kr.
Björn Leví Gunnars­son 1.525.841 kr. 96.900 kr.
Bryndís Haralds­dóttir 1.754.717 kr. 96.900 kr.
Dagbjört Hákonar­dóttir 1.525.841 kr. 96.900 kr.
Diljá Mist Einars­dóttir 1.754.717 kr. 96.900 kr.
Eva Dögg Davíðs­dóttir 1.678.425 kr. 96.900 kr.
Eyjólfur Ármanns­son 1.754.717 kr. 282.400 kr.
Gísli Rafn Ólafs­son 1.678.425 kr. 103.300 kr.
Guðbrandur Einars­son 1.525.841 kr. 158.700 kr.
Guðlaugur Þór Þórðar­son 2.487.072 kr. 0 kr.
Guðmundur Ingi Guðbrands­son 2.487.072 kr. 0 kr.
Guðmundur Ingi Kristins­son 1.754.717 kr. 96.900 kr.
Guðrún Hafsteins­dóttir 2.487.072 kr. 185.500 kr.
Hafdís Hrönn Hafsteins­dóttir 1.602.133 kr. 158.700 kr.
Halla Signý Kristjáns­dóttir 1.525.841 kr. 356.600 kr.
Halldóra Mogensen 1.525.841 kr. 96.900 kr.
Hanna Katrín Friðriks­son 1.754.717 kr. 96.900 kr.
Hildur Sverris­dóttir 1.754.717 kr. 96.900 kr.
Inga Sæland 2.288.762 kr. 96.900 kr.
Ingibjörg Isaksen 1.754.717 kr. 356.600 kr.
Jakob Frímann Magnús­son 1.525.841 kr. 282.400 kr.
Jódís Skúla­dóttir 1.754.717 kr. 356.600 kr.
Jóhann Friðrik Friðriks­son 1.525.841 kr. 158.700 kr.
Jóhann Páll Jóhanns­son 1.678.425 kr. 96.900 kr.
Jón Gunnars­son 1.525.841 kr. 96.900 kr.
Kristrún Frosta­dóttir 2.288.762 kr. 96.900 kr.
Lilja Alfreðs­dóttir 2.487.072 kr. 0 kr.
Lilja Rannveig Sigurgeirs­dóttir 1.525.841 kr. 356.600 kr.
Líneik Anna Sævars­dóttir 1.754.717 kr. 356.600 kr.
Logi Einars­son 1.754.717 kr. 356.600 kr.
Njáll Trausti Friðberts­son 1.678.425 kr. 356.600 kr.
Oddný G. Harðar­dóttir 1.754.717 kr. 356.600 kr.
Orri Páll Jóhanns­son 1.754.717 kr. 96.900 kr.
Óli Björn Kára­son 1.525.841 kr. 96.900 kr.
Sigmar Guðmunds­son 1.602.133 kr. 96.900 kr.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs­son 2.288.762 kr. 282.400 kr.
Sigurður Ingi Jóhanns­son 2.487.072 kr. 259.700 kr.
Stefán Vagn Stefáns­son 1.754.717 kr. 356.600 kr.
Steinunn Þóra Árna­dóttir 1.754.717 kr. 96.900 kr.
Svandís Svavars­dóttir 2.487.072 kr. 0 kr.
Teitur Björn Einars­son 1.754.717 kr. 96.900 kr.
Tómas A. Tómas­son 1.525.841 kr. 96.900 kr.
Vilhjálmur Árna­son 1.602.133 kr. 282.400 kr.
Willum Þór Þórs­son 2.487.072 kr. 0 kr.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs­dóttir 1.678.425 kr. 96.900 kr.
Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir 2.288.762 kr. 96.900 kr.
Þórarinn Ingi Péturs­son 1.754.717 kr. 356.600 kr.
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir 2.487.072 kr. 185.500 kr.
Þórhildur Sunna Ævars­dóttir 1.754.717 kr. 96.900 kr.
Þórunn Sveinbjarnar­dóttir 1.754.717 kr. 96.900 kr.