15.12.1978
Efri deild: 31. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1595 í B-deild Alþingistíðinda. (1138)

131. mál, flugvallagjald

Frsm. minni hl. (Eyjólfur K. Jónsson):

Herra forseti. Hér er enn um að ræða eitt af skattlagningarfrv. ríkisstj. Gildir sama um þetta mál og önnur, að við í minni hl. n. leggjum til að málið verði fellt. Það er flutt brtt., sem ég á von á að verði samþ. þar sem er um stjfrv. að ræða, en við munum að sjálfsögðu greiða atkv. gegn henni og síðan frv. í heild verði brtt. samþ.