04.04.1979
Efri deild: 76. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3837 í B-deild Alþingistíðinda. (3026)

195. mál, hefting landbrots og varnir gegn ágangi vatna

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Landbn. hefur fjallað um þetta frv. Það var leitað álits Búnaðarfélags Íslands, sem mælir með frv. óbreyttu. Flm. gerði grein fyrir málinu við 1. umr. Ég sé ekki ástæðu til að rifja upp rök hans nú, en n. leggur einróma til að frv. verði samþ.