24.03.1980
Neðri deild: 48. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1323 í B-deild Alþingistíðinda. (1302)

111. mál, lántaka Framleiðsluráðs landbúnaðarins

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Samþykkt þessa frv., sem við greiðum hér atkv. um, er til þess að ráða bót á hluta af gífurlegum vanda, sem landbúnaðurinn og ís­lenskir bændur lentu í á s.l. ári og fyrra vetri, og kemur þess vegna ekki nema mjög óbeint við landbúnaðar­stefnunni í heild. Ég er hins vegar sammála þeim, sem hér hafa gert grein fyrir sínu atkv., að gjörbreyta þurfi þeirri stefnu sem hefur verið rekin i þessu máli á liðnum árum og virðist vera rekin nú. En ég tel að þetta sé annað og sérstakt vandamál og ég greiði atkv. með þessu frv. til þess að ráða fram úr því og segi því já.