30.04.1980
Efri deild: 72. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2204 í B-deild Alþingistíðinda. (2056)
154. mál, Bjargráðasjóður
Frsm. (Guðmundur Bjarnason):
Herra forseti. Félmn. hefur fjallað um þetta frv. til l. um breyt. á lögum nr. 51/1972, um Bjargráðasjóð, sbr. lög nr. 110/1976 og lög nr. 41/1977.
Hér er um að ræða staðfestingu á brbl. sem sett voru 9. nóv. 1979 og gerðu ráð fyrir að breyting væri gerð á lögum Bjargráðasjóðs, þar sem sjóðsstjórninni væri heimilt að kveða á um kjör á lánunum, þar með talið um lánstíma, vexti og hvort lánin skulu bundin verðtryggingu.
Nefndin fjallaði um þetta frv. og leggur til að það verði samþ. og staðfest óbreytt.