14.05.1980
Efri deild: 88. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2661 í B-deild Alþingistíðinda. (2633)

17. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Eins og lög og venja gera ráð fyrir eru menn sáttir í þessari deild og samvinnufúsir og reyna að koma málum þannig fyrir að þó þá greini á um efnisatriði vilji þeir starfa saman að framgangi mála. Hér hafa tekist sættir sem forseti mun gera grein fyrir. Ástæðulaust er að ég sé að því. Ég þakka samstarfsmönnum hér í deildinni fyrir að hafa tekið tillit til að ég tel sanngjarnra óska og við höfum hér eðlileg vinnubrögð, eins og við höfum haft þann tíma allan, sem ég hef verið í þessari deild.