19.12.1979
Efri deild: 5. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í B-deild Alþingistíðinda. (84)

16. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Iðnrh. (Bragi Sigurjónsson):

Hæstv. forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. iðnn. fyrir röska og fljóta afgreiðslu á umræddu frv. og vil líka mega vona að það þakklæti nái einnig til hv. þd. Ég get á marga lund tekið undir þær aths. sem hér hafa verið fluttar fram, og alveg get ég tekið undir það, að þetta mál þurfi nánari og betri athugun en nú var unnt að gera, en þykist finna og er þakklátur að þd. skilji þá þrengslastöðu sem við erum í með afgreiðslu þessa máls. Ég endurtek það, að ég er þd. mjög þakklátur fyrir fljóta og góða afgreiðslu.