21.10.1981
Efri deild: 5. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í B-deild Alþingistíðinda. (123)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Helgi Seljan):
Mér hefur borist eftirfarandi bréf:
„Alþingi, 20. okt. 1981.
Þar sem ég er á förum í opinberum erindum leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Haraldur Ólafsson dósent, taki sæti á Alþing; í fjarveru minni.
Ólafur Jóhannesson,
5. þm. Reykv.
Til forseta Ed.“
Haraldur Ólafsson hefur áður átt sæti á Alþingi og kjörbréf hans verið rannsakað og býð ég hann velkominn til þings þegar hann birtist hér í hv. deild. Hann hefur enn þá ekki sést hér, en hann er sem sagt væntanlegur og boðinn velkominn í okkar hóp.