18.03.1982
Sameinað þing: 66. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3141 í B-deild Alþingistíðinda. (2716)

198. mál, verndun á laxi í Norður-Atlantshafi

Frsm. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Eins og kunnugt er var á ráðstefnu, sem haldin var í Reykjavík 18.–22. jan. s.l., gerður samningur um verndun lax í Norður-Atlantshafi. Fjallar till. sú til þál., sem hér er til afgreiðslu, um fullgildingu samnings þessa um verndun lax í Norður-Atlantshafi.

Utanrmn. hefur haft þáltill. þessa til athugunar og nm. orðið sammála um að mæla með samþykkt hennar.