28.04.1982
Efri deild: 77. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4306 í B-deild Alþingistíðinda. (4008)

58. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Ég hef áður í þessum umr. gert grein fyrir afstöðu Alþfl. til þessa máls. Vegna fornra tengsla við þennan skatt veitti Alþfl. honum nokkurt brautargengi um sinn. Þeim stuðningi er nú lokið. Við teljum að þessi skattur eigi ekki rétt á sér, og því segi ég nei.