30.04.1982
Efri deild: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4414 í B-deild Alþingistíðinda. (4127)

273. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Ég er sammála þeirri athugasemd hæstv. forseta, að það er nokkuð óvanalegt hvernig menn hafa gert grein fyrir atkv. sínu við þessa atkvgr. Ég vildi aðeins mega koma þeirri athugasemd fram, að í þingflokki Sjálfstfl. gerði ég grein fyrir fyrirvara mínum ásamt fleirum sem gerðu það á sínum tíma. Það var ekki tekin flokksleg afstaða til málsins eins og oft er gert þegar um slík mál er að ræða.