09.03.1983
Neðri deild: 56. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2752 í B-deild Alþingistíðinda. (2616)

206. mál, stjórnarskipunarlög

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Þar sem formaður þingflokks Alþfl. hefur enn upplýst að þessi till.; eins og margar aðrar sem hv. 4. þm. Reykv. hefur nú flutt, er þegar flutt af fulltrúum Alþfl. í stjórnarskrárnefnd, en hv. 4. þm. Reykv. hefur nú gert hana að sinni í nafni fimmta flokksins á Alþingi, Bandalags jafnaðarmanna, mun þessi till. eins og hinar koma á dagskrá hv. Alþingis síðar. Mun ég þá taka frekari afstöðu til hennar og þeirra annarra till. sem hann hefur tekið upp frá tíma sínum í Alþfl. Að þessu sinni segi ég nei.