15.12.1983
Sameinað þing: 33. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1854 í B-deild Alþingistíðinda. (1555)

139. mál, frysting kjarnorkuvopna

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Ég vil vekja athygli á því að það mál sem hér er til umr. er 24. mál á dagskrá, síðasta mál. En samkomulag hafði orðið um það milli þingflokka að taka málið á dagskrá og freista þess að koma því í n. umræðulaust eða umræðulítið. Þetta vil ég taka fram því að ef verulegar umræður verða verður málinu frestað. Hér er ekki verið að takmarka umr. Það fer að sjálfsögðu að vilja þm. hvað þeir tala lengi í þessu máli.