19.12.1983
Neðri deild: 36. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2235 í B-deild Alþingistíðinda. (1909)

161. mál, málefni aldraðra

Forseti (Ingvar Gíslason):

Án þess að ég ætli að fara að blanda mér í efnisumræður, þá vil ég geta þess að komið hefur til orða á fundum með forsetum beggja deilda og þingflokksformönnum að e.t.v. kynni slík till. að koma fram hér í deild og þá var að heyra á forseta Ed. að það mundi ekki valda neinum töfum þar. Ég vil að þetta komi fram.