16.05.1984
Efri deild: 99. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5955 í B-deild Alþingistíðinda. (5282)

310. mál, menntaskólar

Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):

Virðulegi forseti. Það var gerð breyting á þessu frv. í Nd. Þetta er ekki mikil breyting, en breyting þó. Ég vil í sömu andránni geta um frv. um fjölbrautaskóla. Það var sömuleiðis gerð breyting á því frv. Nd. lagði til að við bættist: Þó skuli námskeiðsgjöld vera hin sömu á öllu landinu.

Menntmn. Ed. gerir ekki aths. við þessa breytingu, en í þessu sambandi má geta um að í þeirri reglugerð, sem sett verður vegna öldungadeildanna, verði tekið fram um lágmarksfjölda nemenda í umræddum deildum.

Virðulegi forseti. Það þarf ekki að hafa um þetta fleiri orð. Hér er augljóst við hvað er átt. Nefndin leggur blessun sína yfir þessa breytingu.