17.12.1984
Efri deild: 31. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2046 í B-deild Alþingistíðinda. (1475)

233. mál, verðjöfnunargjald af raforkusölu

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Herra forseti. Þessu máli var útbýtt hér í Ed. rétt fyrir helgina og nú fyrir fáeinum mínútum barst á borð okkar þm. brtt. í sjö liðum við þetta frv.

Ég vil mælast til þess, ef þetta mál verður tekið hér til 2. umr. nú, að þá verði gefið hlé til þess að þm. hafi færi á að kynna sér efni þessara till. áður en að atkvæðagreiðslu kemur.