18.02.1985
Efri deild: 44. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2978 í B-deild Alþingistíðinda. (2452)

227. mál, dómsvald í héraði

Frsm. (Haraldur Ólafsson):

Virðulegi forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir um skipan dómsvalds í héraði, lögreglustjórn, tollstjórn o.fl., hefur verið til umr. í allshn. Ed. og eru nm. sammála um að mæla með að frv. verði samþykkt óbreytt.