15.04.1985
Neðri deild: 56. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4179 í B-deild Alþingistíðinda. (3505)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Ingvar Gíslason):
Eftirfarandi bréf hefur borist forseta Nd.:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Vesturlandskjördæmi, Sturla Böðvarsson sveitarstjóri, Stykkishólmi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Friðjón Þórðarson,
1. þm. Vesturl.“
Sturla Böðvarsson hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili og þarf ekki að kanna kjörbréf hans. Býð ég Sturlu velkominn til starfa.