22.04.1985
Efri deild: 58. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4411 í B-deild Alþingistíðinda. (3696)

397. mál, veitinga- og gististaðir

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Virðulegi forseti. Í ágústmánuði 1983 skipaði samgrn. nefnd til að endurskoða gildandi lög um veitingasölu, gististaðahald o. fl., en þau lög eru frá árinu 1963 og því orðin 22 ára gömul. Miðað við þær öru breytingar og miklu þróun sem hefur orðið í þessum málum undanfarna tvo áratugi var full þörf þessarar endurskoðunar. Raunar er orðið nokkuð langt síðan mönnum varð ljóst að lög þyrfti um starfsemi þessa. Þannig eru lögin frá 1963 byggð á eldri lagabálki allt frá árinu 1926. Í nefndinni sem samdi frv. sem hér liggur fyrir áttu sæti Lúðvík Hjálmtýsson þáv. ferðamálastjóri, sem þá var formaður nefndarinnar, Hólmfríður Árnadóttir, sem var framkvæmdastjóri Sambands veitinga- og gistihúsa, og Kolbrún Harðardóttir heilbrigðisráðunautur.

Frv. er flutt hér í svo til óbreyttum búningi frá því sem þessi nefnd skilaði því. Aðeins er skotið inn í 2. gr. ákvæði sem til varð í lögum nr. 57 frá 1982 og fjallar um að nafn á fyrirtæki og/eða atvinnustarfsemi skuli falla að hljóðkerfi og beygingum í íslensku máli. Af hálfu rn. hefur hins vegar verið farið gaumgæfilega yfir efni þessa frv. og lítils háttar breytingar gerðar á framsetningu þess.

Þetta frv. er töluvert frábrugðið gildandi lögum. Þannig er greinum fækkað verulega og felld eru niður ákvæði sem tekin hafa verið upp í önnur lög sem jafnframt ná til veifinga- og gistihúsa. Einnig eru felld út ákvæði sem ekki eiga heima í lögum um veitingasölu og gististaðahald, svo og ákvæði sem vegna breyttra aðstæðna eru orðin úrelt.

Ákvæði þessa frv. ná yfir alla sölu á gistingu, hvort heldur er á almennum gististöðum eða einkaheimilum. Einnig ná þau til allrar veitingasölu sem almenningur á aðgang að, þ. e. að undanskildum mötuneytum og stofnunum. Loksins ná ákvæðin til leigu á samkomusölum til funda eða skemmtanahalds, hvort sem er með veitingum eða án þeirra.

Í 8. og 9. gr. þessa frv. er leitast við að flokka þá starfsemi sem undir frv. fellur. Við þá skiptingu er það fyrst og fremst haft í huga að gesturinn geti gert sér sem gleggsta hugmynd um þá starfsemi og þjónustu sem í boði er og að árétta að öll sala á veitingum og gistingu, sem almenningur á aðgang að, fellur undir þessi lagaákvæði.

Eins og menn sjá af þessu frv. er það frekar einfalt í sniðum, enda gert ráð fyrir því að nánari ákvæði verði sett með reglugerð þar sem reglugerðin er sveigjanlegri og auðveldara um breytingar á henni með breyttum starfsháttum og aðstæðum í þessari atvinnugrein sem er eins og ég fyrr sagði í örri þróun. Sérstaklega er þörf á að ákveða í reglugerð um búnað gististaða og veitingastaða.

Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta frv. á þessu stigi málsins, enda þarfnast margar af þeim 15 greinum, sem frv. er skipt í, ekki sérstakrar skýringar.

Virðulegi forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. samgn.