30.04.1985
Sameinað þing: 76. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4621 í B-deild Alþingistíðinda. (3919)

435. mál, uppeldisstörf á dagvistarheimilum

Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Ég held að þessari fsp. verði svarað með því að endurtaka lokaorð mín í hinu fyrra svari mínu. Þar sagði ég einmitt að Valborg Sigurðardóttir hefði verið ráðin til að kynna þessa áætlun í dagvistarheimilum og vinna áfram að gerð leiðbeininga fyrir sömu aðila, þ. e. að verkum sem verða til þess að stuðla að framkvæmd þessarar áætlunar.