07.05.1985
Sameinað þing: 80. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4875 í B-deild Alþingistíðinda. (4157)

12. mál, leit að brjóstakrabbameini

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ólafi Þ. Þórðarsyni fyrir að leiðrétta mig. Þetta voru mismæli. Meining orða minna var sú að mér heyrðist heilbrrh. fullsterkur til að taka við málinu og bera það áfram. Ég treysti honum fyrir því og sé ekki að það þurfi fleiri með honum. En það sakar auðvitað ekki að hafa fjmrh. þétt upp að hlið hans, ég tek undir það.