09.05.1985
Sameinað þing: 81. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5012 í B-deild Alþingistíðinda. (4277)

157. mál, almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu

Frsm. (Ólafur Þ. Þórðarson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 815 um till. til þál. um skipulag almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Nefndin hefur fjallað um þetta mál og kynnt sér umsagnir um það. Einnig hafa nm. að sjálfsögðu vegna staðsetningar Alþingis haft nokkra yfirsýn yfir það hvað hér er verið að tala um.

Álit allshn. var á þann veg að nefndin leggur til að þáltill. verði samþykkt.

Pétur Sigurðsson var fjarstaddur afgreiðslu málsins.