23.05.1985
Efri deild: 80. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5627 í B-deild Alþingistíðinda. (4880)

504. mál, tóbaksvarnir

Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Hæstv. forseti. Hér er um fylgifrv. að ræða með frv. því sem þegar hefur verið samþykkt hér í Ed. Ég gerði raunar grein fyrir efni þess hér við 2. umr. um það mál. Það er einfaldlega um það að ræða að tekjur til tóbaksvarna verði hinar sömu eftir væntanlega gildistöku þeirra laga sem við vorum að afgreiða og verið hefðu að óbreyttum lögum og tel ég einsýnt að allir séu á einu máli um að samþykkja beri þetta frv. eins og hið fyrra.