20.06.1985
Sameinað þing: 100. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6992 í B-deild Alþingistíðinda. (6374)

476. mál, fiskeldismál

Frsm. (Birgir Ísl. Gunnarsson):

Herra forseti. Þetta er þriðja till. í hópi tillagna um fiskeldismál, en tvær þeirra hafa þegar verið afgreiddar fyrr á þessum fundi. Nefndin leggur til að þessi till. fái sömu meðferð og hinar tvær og með sömu rökum, þ. e. að till. verði vísað til ríkisstj.