13.11.1984
Sameinað þing: 19. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 956 í B-deild Alþingistíðinda. (663)

71. mál, heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Ég leyfi mér að benda á að hér á að fara fram umr. um fyrirspurn um heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. Nú þykir mér hv. þm. vera komnir út og suður frá því dagskrármáli þar sem umr. snýst um störf allt annarrar nefndar en störf stjórnarskrárnefndar.