12.12.1985
Neðri deild: 27. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1486 í B-deild Alþingistíðinda. (1168)
182. mál, málefni aldraðra
Heilbr.- og trmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Í lagabreytingunni, sem gerð var rétt fyrir jólahlé þingheims í fyrra, var það ákvæði sett inn í lögin að upphæðin sem þá var tilgreind breyttist í samræmi við skattvísitölu. Þessi upphæð mun vera reiknuð út á þeim grundvelli. Það eru þær upplýsingar sem ég hef, en núna, ef þetta frv. verður samþykkt, breytist þessi upphæð í samræmi við það sem ég greindi frá í fyrri ræðu minni.
Umr. (atkvgr.) frestað.