22.04.1986
Neðri deild: 94. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4353 í B-deild Alþingistíðinda. (4104)

442. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Frsm. (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. frá allshn. Nd. á þskj. 1028 um frv. til l. um breytingu á lögum um Happdrætti Háskóla Íslands.

Nefndin hefur fjallað um þetta frv. og leggur til að það verði samþykkt. Einn nefndarmanna, Pálmi Jónsson, ritar undir nál. með fyrirvara og áskilur sér rétt til að flytja við það brtt. Kristófer Már Kristinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir þetta rita Gunnar G. Schram, Guðrún Helgadóttir, Friðjón Þórðarson, Ólafur Þ. Þórðarson, Pálmi Jónsson með fyrirvara og Stefán Guðmundsson.