23.04.1986
Neðri deild: 96. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4542 í B-deild Alþingistíðinda. (4327)

415. mál, skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Með hliðsjón af því hvernig fyrri atkvæðagreiðslan fór og þar sem ég vil ekki að Alþingi staðfesti með því að fella þessa brtt.ríkisstj. sé óheimilt að gefa eftir þann gengismun sem um ræðir í henni en telur sig hafa heimildir skv. þeim lögum sem nú standa, þá dreg ég þessa till. til baka.