17.12.1986
Neðri deild: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1961 í B-deild Alþingistíðinda. (1820)

87. mál, verkfall flugvirkja og flugvélstjóra hjá Arnarflugi hf.

Frsm. meiri hl. samgn. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Samgn. Nd. hefur fjallað um þetta frv. og meiri hl. leggur til að það verði samþykkt óbreytt. Undir það skrifa ásamt mér hv. þm. Halldór Blöndal, Friðjón Þórðarson, Stefán Guðmundsson og Eggert Haukdal.

Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon tjáði mér að hann mundi ekki skila nál., en hv. þm. Karvel Pálmason var fjarstaddur afgreiðslu málsins.