17.12.1986
Neðri deild: 26. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1961 í B-deild Alþingistíðinda. (1821)

87. mál, verkfall flugvirkja og flugvélstjóra hjá Arnarflugi hf.

Frsm. meiri hl. samgn. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Samgn. Nd. hefur einnig fjallað um þetta mál og meiri hl. nefndarinnar leggur til að það verði samþykkt óbreytt. Undir það skrifa ásamt mér hv. þm. Halldór Blöndal, Friðjón Þórðarson, Stefán Guðmundsson og Eggert Haukdal.

Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon tjáði mér að hann mundi ekki skila nál. minni hl., en hv. þm. Karvel Pálmason var fjarstaddur afgreiðslu málsins.