18.12.1986
Neðri deild: 28. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk í B-deild Alþingistíðinda. (1883)
207. mál, Iðnlánasjóður
Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 407 um frv. til l. um ábyrgð vegna norrænna fjárfestingarlána til útflutningsverkefna. Þetta er nál. frá fjh.- og viðskn. sem mælir einróma með samþykkt frv. Guðrún Agnarsdóttir, sem sat fundi nefndarinnar, er samþykk afgreiðslu málsins.