24.02.1987
Sameinað þing: 55. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3378 í B-deild Alþingistíðinda. (3051)

366. mál, neyslu- og manneldisstefna

Flm. (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Herra forseti. Mig langar til að þakka þeim hv. þm. sem hafa tekið þátt í þessari umræðu um þessa þáltill. Mig langar aðeins til að geta þess í framhaldi af máli mínu áðan að í þeim löndum þar sem stefna hefur verið mörkuð í neyslu- og manneldismálum, þar sem hún er komin í framkvæmd, þá hefur hún yfirleitt heyrt undir félagsmálaráðuneyti eða umhverfismálaráðuneyti. Ég hef orðið vör við þann misskilning að berra eigi að heyra eingöngu undir heilbrigðismál. En ég vildi láta þetta koma fram.