16.03.1987
Neðri deild: 65. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4279 í B-deild Alþingistíðinda. (3977)

249. mál, listmunauppboð

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég vil bara skýra frá því að þessi brtt., sem við hv. þm. Halldór Blöndal flytjum um samráð við Samband ísl. myndlistarmanna við setningu reglugerðar um starfslaunasjóð myndlistarmanna, er samkomulagsmál sem fyrir okkar mistök féll út í brtt. þeim sem voru afgreiddar við 2. umr. málsins.