18.03.1987
Efri deild: 71. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4505 í B-deild Alþingistíðinda. (4358)

19. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):

Virðulegi forseti. Á þskj. 1038 liggur fyrir frv. til laga um veitingu ríkisborgararéttar eins og Nd. gekk frá því. Síðan það var til umræðu hér í hv. Ed. hafa bæst við nokkur nöfn eða nokkrar umsóknir sem teknar hafa verið inn sem engir meinbugir voru á og uppfylltu þau skilyrði sem sett eru.

Ég legg til að þetta frv. verði samþykkt óbreytt eins og Nd. gekk frá því.