18.03.1987
Efri deild: 71. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4505 í B-deild Alþingistíðinda. (4359)

19. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. fjh.- og viðskn. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Hæstv. forseti. Hv. fjh.- og viðskn. hefur einnig á fundi sínum í dag kíkt á brtt. sem gerð er við þetta frv. í Nd. og hún er mjög skarpleg. Í frv. þegar það kom frá okkur var dálítið meinleg villa. Lögin áttu að öðlast gildi 1. jan. 1987, þau voru til nefnilega á haustþinginu og okkur hefur yfirsést þetta, sem sjaldan kemur fyrir í þessari hv. deild, en þeir leggja til að það verði 1. jan. 1988 og ég held að það sé nú skynsamlegra að hafa það þannig.