04.05.1988
Neðri deild: 90. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7420 í B-deild Alþingistíðinda. (5452)

454. mál, viðskiptabankar

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Svohljóðandi bréf hefur borist, dags. 5. maí 1988:

„Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstfl., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem Eyjólfur Konráð Jónsson, 8. þm. Reykv., er veikur og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér að beiðni hans með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að vegna setu 1. varamanns á þingi taki 2. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Jón Magnússon lögfræðingur, sæti á Alþingi í forföllum hans.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Karl Steinar Guðnason,

forseti Ed."

Jón Magnússon lögfræðingur hefur áður tekið sæti á þessu þingi og er hann boðinn velkominn til starfa á ný.