07.05.1988
Neðri deild: 95. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7702 í B-deild Alþingistíðinda. (5759)

432. mál, Ríkisendurskoðun

Hreggviður Jónsson:

Herra forseti. Eins og fram kom í umræðum í gær er Alþingi hér að fara inn á verksvið framkvæmdarvaldsins og dómsvalds að hluta til. Það er þróun sem ég tel að sé mjög neikvæð og jafnframt að það sé hægt að fá sömu útkomu með því að leita annarra leiða. Ég segi nei.