16.11.1987
Sameinað þing: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 949 í B-deild Alþingistíðinda. (614)
83. mál, nýting á kartöflum
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf, dagsett 13. nóv. 1987:
„Ragnhildur Helgadóttir, 3. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Sólveig Pétursdóttir lögfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Jón Kristjánsson,
forseti Nd."
Sólveig Pétursdóttir hefur áður tekið sæti á þessu þingi og er hún boðin velkomin til starfa á ný.