131. löggjafarþing — 21. fundur,  8. nóv. 2004.

Afsláttur af raforkuverði.

[15:37]

iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég ítreka það að við erum að fara inn í gjörbreytt umhverfi þar sem allt er uppi á borðinu en ýmislegt sem viðhaft var var kannski minna uppi á borðinu. Ég er ekki að gera lítið úr því að það hafi verið mikilvægt fyrir þær atvinnugreinar sem hér voru nefndar. En þegar við tökum upp frjálsa samkeppni á þessu sviði þá eru okkur ákveðin takmörk sett eins og allir vita.

En það sem ég get sagt og endurtek hér er að mér finnst þetta mikilvægir málaflokkar og atvinnugreinar og innan þeirra marka sem ég hef möguleika á mun ég beita mér fyrir því að þarna verði alla vega enginn skellur.