131. löggjafarþing — 46. fundur, 2. des. 2004.
Úrvinnslugjald.
394. mál
[12:03]
umhverfisráðherra (Sigríður A. Þórðardóttir) (S) (andsvar):
Herra forseti. Ég vil fyrst og fremst ítreka að það er verið að lækka árlega gjaldið á bílana og þannig vil ég bregðast við þessum orðum hv. þm. Marðar Árnasonar. Það er verið að lækka það úr 1.040 kr. niður í 700 kr. og það er þá alveg ljóst að þeir sem borga einu sinni — þetta gjald er borgað tvisvar á ári, skipt í tvennt — sá sem borgar 350 kr. getur fengið skilagjaldið þegar hann skilar inn bifreið til endurvinnslu.