131. löggjafarþing — 106. fundur, 7. apr. 2005.
Landbúnaðarstofnun.
700. mál
[15:23]
Lára Stefánsdóttir (Sf) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil ítreka mikilvægi þess að hæstv. ráðherra gefi upp hvar hann hyggst koma stofnuninni fyrir þannig að augljósara sé í hvaða umhverfi stofnunin muni vinna og hvað gera megi ráð fyrir að margir starfsmenn fylgi með henni þangað sem henni verður ætlaður staður.