131. löggjafarþing — 106. fundur, 7. apr. 2005.
Landbúnaðarstofnun.
700. mál
[17:17]
landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson) (F) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég bendi á að tvö markmið fylgja sameiningu í slíka stofnun. Í fyrsta lagi að gera þau störf skilvirkari og markvissari sem henni eru falin. Ég hef mikla trú á því að þessu fylgi sparnaður. Þetta eru litlar stofnanir í mörgum húsum í höfuðborginni og sumum hverjum dýrum. Ég held því að til framtíðar muni þessi aðgerð spara ríkinu peninga og gera störf embættanna markvissari og þeim fylgi þá einnig sparnaður.