131. löggjafarþing — 125. fundur, 7. maí 2005.
Afgreiðsla mála fyrir þinghlé.
[10:35]
Forseti (Halldór Blöndal):
Ég tel rétt að eiga fund með formönnum þingflokka nú í matarhléi milli klukkan eitt og hálftvö til þess að við getum borið saman bækur okkar og metið stöðuna. Eins og hv. þingmenn vita er oftar en ekki gripið til funda á laugardögum þegar dregur að lokum þinghalds.