132. löggjafarþing — 35. fundur, 6. des. 2005.
Fjárlög 2006.
1. mál
Frú forseti. Það er sjálfsagt að skýra það að vegna fyrirspurnar hv. þingmanns lét ég kanna það sérstaklega í skrám ráðuneytisins hvort þessi samantekt lægi fyrir. Hún hefur ekki borist ráðuneytinu en það sem hins vegar getur villt mönnum sýn í þessu efni er að drög að samantektinni hafa gengið á milli ráðuneytisins og Lánasýslunnar. Vinnunni við hana er ekki lokið og þegar henni lýkur verður hún að sjálfsögðu ekkert leyndarmál.