132. löggjafarþing — 49. fundur, 23. jan. 2006.
Varamenn taka þingsæti.
Borist hefur svohljóðandi bréf frá Rannveigu Guðmundsdóttur, 2. þm. Suðvest., dags. 20. janúar 2006:
„Þar sem ég get ekki sótt þingfundi á næstunni vegna veikinda óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, Jón Kr. Óskarsson, Hafnarfirði, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“
Jón Kr. Óskarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.