132. löggjafarþing — 52. fundur, 25. jan. 2006.
Nýting stofnfrumna úr fósturvísum til rannsókna og lækninga.
64. mál
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi viðbrögð og ég lít svo á að í orðum hans felist hvatning til nefndarinnar um að afgreiða málið frá sér þannig að sú nefnd sem starfar á vegum forseta í þessu efni fái leiðsögn frá þinginu um það hvernig þingið vill að haldið sé á þessum málum.