132. löggjafarþing — 53. fundur, 26. jan. 2006.
Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.
288. mál
Virðulegi forseti. Ég harma þessi ummæli. Ég hef aldrei sýnt hv. þingmanni annað en virðingu og aldrei nokkurn tímann hvarflað að mér að tala með fyrirlitningu í hans garð eða nokkurra flokksbræðra hans. Það er bara rangt. Menn eiga ekki að koma og segja svona sem er algjörlega staðhæfulaus stafur.