132. löggjafarþing — 61. fundur,  8. feb. 2006.

Lög um fæðingarorlof – undirbúningur að fjölmiðlafrumvarpi.

[12:13]
Hlusta

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Frú forseti. Hér hefur verið minnst á vandræði íslenskra námsmanna erlendis varðandi fæðingarorlofið. Mig langar hins vegar að minnast á tvo aðra annmarka til viðbótar.

Nú miðast greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði við tekjur síðustu tveggja almanaksára. Það getur því munað heilmiklu í tekjum eignist viðkomandi aðili barn t.d. í desember eða í byrjun janúar. Eignist maður barn 31. desember 2005 er miðað við árin 2004 og 2003 en eignist viðkomandi barn 1. janúar 2006 er miðað við tekjur ársins 2005 og 2004. Fyrir þann sem eignast gamlársdagsbarnið er því ekki tekið tillit til þeirra tekna sem unnið var til á því ári. Í því tilviki er því litið til 36 mánaða aftur í tímann í stað 24 mánaða.

Þetta getur munað talsverðu enda getur margt gerst á einu ári svo sem stöðuhækkun, launahækkun, lok námsferils, atvinnuleysi á fyrri hluta tímabilsins o.s.frv. Mér er síðan sagt að þetta sé svona m.a. vegna tölvukerfis Tryggingastofnunar. En hvort er fæðingarorlofskerfið miðað við hagsmuni fjölskyldna eða hagsmuni tölvukerfis Tryggingastofnunar? Væri ekki réttlátara að miða við tekjur síðustu tveggja ára frá fæðingardegi barnsins í stað þess að taka tvö síðustu almanaksár fyrir fæðingarárið? Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra, komist hann hér að, hvort honum finnist þetta eðlilegt og hvort hann sé tilbúinn að beita sér fyrir breytingu á þessu fyrirkomulagi.

Mig langar einnig að vekja athygli á þeirri stöðu þegar fólk eignast barn með stuttu millibili. Fólk getur nefnilega verið að eignast fleiri en eitt barn á þremur árum. En þar sem núverandi kerfi miðar við tekjur tveggja ára geta fæðingarorlofsgreiðslur vegna seinna barns verið miðaðar við fæðingarorlofsgreiðslur vegna fyrra barns, þá getur fólk verið að fá fæðingarorlofstekjur sem eru 80% af 80% tekjum. Þetta fer augljóslega gegn því markmiði að aðstoða barnafjölskyldur. Finnst hæstv. ráðherra þetta eðlilegt eða er hann tilbúinn að beita sér fyrir breytingu á þessu fyrirkomulagi?