132. löggjafarþing — 84. fundur,  13. mars 2006.

Fundur iðnaðarnefndar um vatnalögin.

[15:51]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Forseta ber að stýra þingfundum samkvæmt þingsköpum og hyggst gera það. Að öðru leyti fer hann eftir mælendaskrá. Mér telst til að einir níu hv. þingmenn óski eftir að ræða um fundarstjórn forseta. Svo er líka löng mælendaskrá með því máli sem er á dagskrá þingsins.